Mæðgur í rándýrum kjólum

Kardashian | 19. ágúst 2023

Mæðgur í rándýrum kjólum

Mæðgurnar Khloé Kardashian og True Thompson klæddust eins kjólum á ferðalagi sínum um Ítalíu á dögunum.

Mæðgur í rándýrum kjólum

Kardashian | 19. ágúst 2023

Mæðgurnar Khloé og True.
Mæðgurnar Khloé og True. Skjáskot/Instagram

Mæðgurnar Khloé Kardashian og True Thompson klæddust eins kjólum á ferðalagi sínum um Ítalíu á dögunum.

Mæðgurnar Khloé Kardashian og True Thompson klæddust eins kjólum á ferðalagi sínum um Ítalíu á dögunum.

Kardashian birti hugljúfar myndir af sér með fimm ára dóttur sinni True og skrifaði við færsluna á ítölsku: „L'amor che move il sol e l'altre stelle“ sem þýða má sem ástin sem færir sól og aðrar stjörnur.

Kjólarnir eru ekki af verri endanum en þeir eru úr smiðju Dolce & Gabbana og kostar fullorðinsútgáfan af kjólnum í kringum 250 þúsund krónur. Kardashian fjölskyldan hefur lengi haft dálæti á tískumerkinu Dolce & Gabbana. Kim Kardashian sést oft í kjólum frá þeim auk þess sem Kourtney Kardashian klæddist merkinu í brúðkaupi sínu og Travis Barker á Ítalíu sem og aðrir fjölskyldumeðlimir.

Khloé gaf ekki út hvar á Ítalíu þær mæðgur dvöldu.
Khloé gaf ekki út hvar á Ítalíu þær mæðgur dvöldu. Skjáskot/Instagram
Khloé nýtur sín vel í móðurhlutverkinu og er dugleg að …
Khloé nýtur sín vel í móðurhlutverkinu og er dugleg að birta hugljúfar myndir af sér og börnunum sínum. Skjáskot/Instagram
mbl.is