„Það er með sorg í hjarta að ég tilkynni að systir mín lést skyndilega í gær“

Kardashian | 21. mars 2024

„Það er með sorg í hjarta að ég tilkynni að systir mín lést skyndilega í gær“

Karen Houghton, yngri systir raunveruleikastjörnunnar Kris Jenner, lést skyndilega á þriðjudag. Hún var 65 ára gömul. 

„Það er með sorg í hjarta að ég tilkynni að systir mín lést skyndilega í gær“

Kardashian | 21. mars 2024

Kris Jenner tilkynnti um fráfall systur sinnar á Instagram í …
Kris Jenner tilkynnti um fráfall systur sinnar á Instagram í gærdag. Samsett mynd

Karen Houghton, yngri systir raunveruleikastjörnunnar Kris Jenner, lést skyndilega á þriðjudag. Hún var 65 ára gömul. 

Karen Houghton, yngri systir raunveruleikastjörnunnar Kris Jenner, lést skyndilega á þriðjudag. Hún var 65 ára gömul. 

Jenner tilkynnti um fráfall Houghton á Instagram-síðu sinni í gærdag.

„Það er með sorg í hjarta að ég tilkynni að systir mín lést skyndilega í gær. Hjarta mitt er fullt af söknuði og sorg. Hugur minn er hjá móður okkar og frænku. Ég bið Guð um að leiða okkur í gegnum þennan erfiða tíma,“ skrifaði Jenner við myndaseríu sem sýnir systurnar á uppvaxtarárunum. 

„Karen var falleg kona bæði að innan sem utan. Hún á stóran hluta í hjarta mínu og ég mun varðveita minningarnar sem ég á með henni. Fráfall hennar minnir mann á það hvað lífið er stutt og dýrmætt, morgundagurinn er aldrei lofaður. Við verðum að segja þeim sem okkur þykir vænt um, hversu mikið við elskum þá. Ég elska þig fallega systir mín,“ skrifaði Jenner einnig. 

Lítið er vitað um tengsl systranna en Houghton sást ekki á sjónvarpsskjánum í raunveruleikaþáttaröð Kardashian-fjölskyldunnar. Jenner birti engar nýlegar myndir af þeim systrum í færslunni.  

View this post on Instagram

A post shared by Kris Jenner (@krisjenner)

mbl.is