Varð ólétt án aðstoðar

Kardashian | 18. október 2023

Varð ólétt án aðstoðar

Kourtney Kardashian og eiginmaður hennar Travis Barker urðu ólétt með náttúrulegum hætti. Þau höfðu reynt frjósemismeðferðir án árangurs sem tók mikinn toll á parið.

Varð ólétt án aðstoðar

Kardashian | 18. október 2023

Kourtney Kardashian og Travis Barker reyndu lengi að eignast barn …
Kourtney Kardashian og Travis Barker reyndu lengi að eignast barn saman. Svo gerðist það. AFP

Kourtney Kardashian og eiginmaður hennar Travis Barker urðu ólétt með náttúrulegum hætti. Þau höfðu reynt frjósemismeðferðir án árangurs sem tók mikinn toll á parið.

Kourtney Kardashian og eiginmaður hennar Travis Barker urðu ólétt með náttúrulegum hætti. Þau höfðu reynt frjósemismeðferðir án árangurs sem tók mikinn toll á parið.

Meðferðirnar settu hana í snemmbúin tíðahvörf og höfðu mikil áhrif á hana andlega og líkamlega en hún var mjög opinská um ferlið á sínum tíma.

Í viðtali við Vanity Fair Italia segir hún að barnið hafi síðan komið undir með náttúrulegum hætti.

„Það kom þegar ég og Travis vorum hætt að hugsa um barneignir og þegar ég hætti öllum frjósemismeðferðum,“ segir Kardashian.

Þá segir Kardashian að hún hafi alltaf vitað að frjósemismeðferðir væru ekki fyrir hana en að mikill þrýstingur hafi verið á henni að fara þá leið.

„Þetta var eiginlega ekki val. Mér var ýtt þangað, líkt og það væri eini valkosturinn. Sannleikurinn er sá að mér leið alltaf eins og ég væri að gera eitthvað sem væri ekki rétt fyrir mig. Mitt innsæi sagði mér að þetta væri ekki rétt. Ég tek aldrei inn lyf. Ég var alltaf að segja Travis að ef barn væri í kortunum þá myndi það gerast. Og sú varð raunin. Það gerðist þegar við hættum að þvinga málum áfram.“

mbl.is