Svava Guðrún Helgadóttir og eiginmaður hennar, Hákon Hallfreðsson, hafa sett fallega íbúð sína við Asparholt á Álftanesi á sölu. Íbúðin telur 76 fm og er á jarðhæð í fjölbýlishúsi sem reist var árið 2004.

Svava og Hákon hafa innréttað heimili sitt á sjarmerandi máta þar sem mjúkir tónar og fallegir húsmunir eru í forgrunni. Blaðamaður Morgunblaðsins fór í innlit á heimili þeirra á síðasta ári, en þar lýsti Svava sjálf heimilisstílnum sem hlýlegum og notalegum.
Eldhús og stofa eru samliggjandi í björtu rými með stórum gluggum. Í eldhúsi má sjá Y-stólana úr smiðju hins danska Hans J. Wegner og fallegt loftljós frá Watt&veke sem skapa hlýlega stemningu í rýminu.
Í stofunni hefur verið hugað að öllum smáatriðum, en þar má sjá fallega muni, myndir, spegla og strá sem gera mikið fyrir rýmið. Pond-spegillinn frá Ferm Living fangar augað strax, en í rýminu má einnig sjá Stockholm-skenkinn frá Ikea sem fær að njóta sín vel.
Eignin státar af tveimur svefnherbergjum og einu baðherbergi. Í viðtalinu segir Svava að hjónaherbergið sé uppáhaldsstaðurinn hennar í íbúðinni, enda hafi þau lagt áherslu á að gera það notalegt, bjart og fallegt.