Í skíðaferð með nýja kærastanum

Vetraríþróttir | 2. febrúar 2024

Í skíðaferð með nýja kærastanum

Leikkonan Sophie Turner er komin með nýjan kærasta eftir erfiðan skilnað við barnsföður sinn Joe Jonas. Sá heppni heitir Peregrine Pearson og er af breskum aðalsættum. Þau gerðu það eina rétta í stöðunni og fóru í rómantískt frí á skíði á dögunum. 

Í skíðaferð með nýja kærastanum

Vetraríþróttir | 2. febrúar 2024

Sophie Turner var flott í brekkunum.
Sophie Turner var flott í brekkunum. Samsett mynd

Leikkonan Sophie Turner er komin með nýjan kærasta eftir erfiðan skilnað við barnsföður sinn Joe Jonas. Sá heppni heitir Peregrine Pearson og er af breskum aðalsættum. Þau gerðu það eina rétta í stöðunni og fóru í rómantískt frí á skíði á dögunum. 

Leikkonan Sophie Turner er komin með nýjan kærasta eftir erfiðan skilnað við barnsföður sinn Joe Jonas. Sá heppni heitir Peregrine Pearson og er af breskum aðalsættum. Þau gerðu það eina rétta í stöðunni og fóru í rómantískt frí á skíði á dögunum. 

Með í för voru vinir þeirra og birti Turner myndir á Instagram. Ekki kom fram hvar parið brunaði niður brekkurnar. Á meðan Íslendingar eru duglegir að fara til Austurríkis og Ítalíu í skíðaferðir er mikið um að Hollywood-stjörnur fari til Aspen. 

Stjarnan var á svigskíðum í skíðaferðinni og klæddist töffaralegum skíðafötum. Hún var í skíðabuxum og skíðaúlpu í stíl. Fötin voru blá og hvít og köflótt þannig að það tóku allir eftir Turner í skíðabrekkunni. Hún faldi sig þó á bak við stóran hjálm og flott skíðagleraugu. 

mbl.is