Það var nóg um vera í síðustu viku. Þorrablótin héldu áfram og líklega fjölmargir sem skemmtu sér vel um helgina. Það virðist einnig ekkert lát vera á skíðagleði Íslendinga þar sem þó nokkrir landsmenn hafa nýlega skellt sér erlendis til að fara á skíði. Þá var nokkrum afmælum fagnað um helgina.

Freyja Haraldsdóttir, doktorsnemi og baráttukona fyrir réttindum fatlaðra, fagnaði afmæli kærasta síns um helgina. David Agyenim Boateng og Freyja tilkynntu um samband sitt í síðustu viku.
Söngkonan Svala Björgvinsdóttir fagnaði afmæli sínu í vikunni.
Áhrifavaldurinn Helga Margrét Agnarsdóttir er alltaf til í gott partí, sérstaklega þegar það felur í sér að skoða fallega list og dansa með skvísum.
Áhrifavaldurinn Magnea Björg Jónsdóttir skellti sér út í kuldann og tók nokkrar myndir í leiðinni.
Áhrifavaldurinn Guðrún Helga Sörtveit fangaði fjögurra ára afmæli dóttur sinnar. Hún segir dóttur sína hafa beðið eftir þessum degi í marga mánuði.
Bloggarinn Svana Lovísa Kristjánsdóttir fór á þorrablót Hafnarfjarðar á laugardag.
Áhrifavaldurinn Ástrós Traustadóttir fékk sér kaffi og birti myndir af því á Instagram
Margrét Bjarnadóttir, bæjarfulltrúi sjálfstæðismanna í Garðabæ, fór í draumaskíðaferð til Ischgl í Austurríki.
Gyða Dröfn Sveinbjörnsdóttir,vörumerkjastjóri hjá Ölgerðinni, skellti sér einnig á skíði í Austurríki.
Áhrifavaldurinn Móeiður Lárusdóttir deildi fallegum myndum af sér og dætrum sínum á Instagram.
Leikkona Nína Dögg Filippusdóttir fór á skíði í Frakklandi með góðum konum.
Skemmtikrafturinn Sólmundur Hólm Sólmundarson fagnaði afmæli eiginkonu sinnar, fjölmiðlakonunnar Viktoríu Hermannsdóttur, í gær. Þau vörðu deginum saman í Kaupmannahöfn í Danmörku.
Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri lét sig heldur betur ekki vanta á þorrablót Hafnarfjarðar. Hún stillti sér upp með öðrum sjálfstæðismönnum.
Fanney Ingvarsdóttir, markaðsfulltrúi Bioeffect og fyrrverandi fegurðardrottning, breytti aðeins til og litaði hárið sitt ljóst.
Ljósmyndarinn Helgi Ómarsson sagði fylgjendum sínum á Instagram að það væri mikilvægt að endurhlaða sig. „Gerið allt sem getur látið ykkur líða vel, róa taugakerfið, anda, fá alla jákvæðu hormónana og ró í hjartað,“ skrifaði Helgi á Instagram.
Sanna Magdalena Mörtudóttir, borgarfulltrúi Sósíalistaflokksins, fór á ghanískan viðburð.
Áhrifavaldurinn Sunneva Einarsdóttir fagnaði afmæli kærasta síns um helgina.
Fjölmiðlakonan Berglind „Festival“ Pétursdóttir fór í nokkur afmælisboð. „Af hverju eiga allir sem ég þekki afmæli i febrúar,“ spyr Berglind á Instagram.