Stýrivextir Seðlabankans óbreyttir

Vextir á Íslandi | 20. mars 2024

Stýrivextir Seðlabankans óbreyttir

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda vöxtum bankans óbreyttum. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum verða því áfram 9,25%.

Stýrivextir Seðlabankans óbreyttir

Vextir á Íslandi | 20. mars 2024

Seðlabanki Íslands.
Seðlabanki Íslands. mbl.is/Golli

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda vöxtum bankans óbreyttum. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum verða því áfram 9,25%.

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda vöxtum bankans óbreyttum. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum verða því áfram 9,25%.

Þetta kemur fram í tilkynningu.

Verðbólga gæti orðið áfram þrálát

Fram kemur í yfirlýsingu peningastefnunefndar bankans að verðbólga hafi minnkað lítillega í febrúar og mælst 6,6%. Undirliggjandi verðbólga hafi einnig hjaðnað en mæld verðbólga sé enn vel yfir verðbólgumarkmiði.

„Verðbólguvæntingar eru einnig yfir markmiði sem gæti bent til þess að verðbólga verði áfram þrálát,” segir í tilkynningunni.

„Nýleg endurskoðun Hagstofu Íslands á þjóðhagsreikningum sýnir að hagvöxtur á síðustu árum var meiri en fyrri tölur bentu til. Spennan í þjóðarbúinu virðist því vera umfram það sem áður var talið. Áfram hægir þó á vexti efnahagsumsvifa enda er taumhald peningastefnunnar töluvert.”

Minni óvissa vegna kjarasamninga

Fram kemur einnig að óvissa hafi minnkað eftir undirritun kjarasamninga á almennum vinnumarkaði. Spennan í þjóðarbúinu gæti þó leitt til þess að launaskrið verði meira en ella. Einnig gætu aðgerðir í ríkisfjármálum aukið eftirspurn og verðbólguþrýsting.

„Mótun peningastefnunnar á næstunni mun sem fyrr ráðast af þróun efnahagsumsvifa, verðbólgu og verðbólguvæntinga.”

mbl.is