Módelflugvél flogið yfir Atlantshaf

Flugtak módelflugvélarinnar undirbúið í Nýfundnalandi í Kanada í síðustu viku.
Flugtak módelflugvélarinnar undirbúið í Nýfundnalandi í Kanada í síðustu viku.

Pínulítil módelflugvél er á leið með að verða fyrsta flugvél sinnar tegundar til að fljúga yfir Atlantshafið. Hún var hönnuð af 77 ára blindum og nær heyrnarlausum bandarískum manni, Maynard Hill, sem heima á í Pennsylvaníu.

Búist er við að flugvélin, sem er af gerðinni TAM-5, lendi í dag á Mannin-strönd í Connemara Gaeltacht. Írskir radíóamatörar hafa aðstoðað Hill en þeir munu nema merki frá vélinni er hún nálgast strendur Galway-héraðs og þannig leiðbeina henni inn til lendingar.

Flugvélinni var hleypt á loft á Nýfundnalandi á laugardagskvöld klukkan 22:15 að staðartíma, rúmlega miðnætti að íslenskum tíma í fyrrinótt. Klukkan 11 að íslenskum tíma í dag hafði hún lagt að baki 1.612 sjómílur.

Flug módelflugvélarinnar yfir Atlantshaf

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert