Bretar ráða þúsund njósnara

Gordon Brown hyggst ráða þúsund nýja njósnara til þjónustu hennar …
Gordon Brown hyggst ráða þúsund nýja njósnara til þjónustu hennar hátignar. AP

Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands tilkynnti í dag að bresku leyniþjónusturnar muni stækka á næstunni og ráða í um það bil eitt þúsund nýjar stöður til að bregðast við hryðjuverkaógninni. 

Í ræðu á breska þinginu þar sem hann fór yfir áætlun stjórnar sinnar í öryggismálum, sagði hann jafnframt að Bretland væri reiðubúið til að fækka kjarnaoddum í vopnabúri sínu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert