Fá öll ný nöfn og kennitölur

Heimili Fritzl fjölskyldunnar í Amstetten í Austurríki
Heimili Fritzl fjölskyldunnar í Amstetten í Austurríki Reuters

Austurrísk yfirvöld hafa samþykkt að veita öllum meðlimum fjölskyldu Josefs Fritzl ný nöfn og kennitölur. Yfirvöld ákváðu að veita eiginkonunni Rosmarie, Elísabetu og börnunum sex ný nöfn eftir að þau ákváðu að hafna viðtölum við fjölmiðla um raunir sínar. „Það hafa borist mörg boð um viðtöl en sú ákvörðun að koma ekki fram opinberlega er endanleg,“ sagði lögfræðingur Fritzl-barnanna.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert