Tók til og sló gras í óleyfi

Cris Cox
Cris Cox Sky-fréttastofan

Nú þegar nánast allar ríkisstofnanir í Bandaríkjunum hafa verið lokaðar í rúma viku eða starfsemi þeirra takmörkuð verulega vegna þess að ekki náðist samkomulag um fjárlög næsta árs, hefur Bandaríkjamaðurinn Cris Cox tekið málið í sínar hendur.

Honum leiddist að horfa upp á óslegnar grasflatir og rusl sem flæðir víða upp úr ruslatunnum, en starfsmenn garða og ýmissa minnismerkja voru meðal þeirra ríkisstarfsmanna sem sendir voru í hlé  og vildi Cox því leggja sitt af mörkum. Hann var önnum kafinn við að taka til og slá gras á lóðinni við Lincoln minnismerkið þegar lögregla kom og bað hann vinsamlegt um að yfirgefa svæðið.

Barack Obama reynir nú eftir fremsta megni að leysa málin.

Frétt Sky-fréttastofunnar.


mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert