Heitir miskunnarlausu stríði gegn hryðjuverkum

Öfluguru lífvörður gætti öryggis Francois Hollande er hann fór að …
Öfluguru lífvörður gætti öryggis Francois Hollande er hann fór að Bataclan tónleikahúsinu þar sem hryðjuverkamenn drápu tugi manna. mbl.is/afp

François Hollande Frakklandsforseti hefur heitið „miskunnarlausu“ stríði á hendur hryðjuverkastarfsemi. Yfirstjórn franska hersins var kvödd til fundar í forsetahöllinni í morgun.

Hollande lýsti yfir hernaði á hendur hryðjuverkamönnum er hann fór á vettvang hryðjuverkanna í tónlistarhúsinu Bataclan. „Við það fólk sem var hér viðstatt, og upplifði verknaðina grimmilegu viljum við segja að við munum leggja í hernað, sem verður miskunnarlaus,“ sagði Hollande.

Í Bandaríkjunum hefur verið gripið til ráðstafana vegna hryðjuverkanna í París sem kostuðu á annað hundrað manns lífið í gærkvöldi.

Þá efndi David Cameron forsætisráðherra Bretlands til sérstaks fundar neyðarráðsins COBRA í London í morgun um hvernig brugðist skuli við þar í landi vegna ódæðanna í París.

Loks boðaði Angela Merkel Þýskalandskanslari til sérstaks neyðarfundar ráðherra vegna árásanna í París. Hét hún frönskum stjórnvöldum  öllu hugsanlegu liðsinni í baráttunni við hryðjuverkaöflin.

Sjúkrabílar við Stade de France leikvaginn í gærkvöldi. Sjálfsmorðssprengjur voru …
Sjúkrabílar við Stade de France leikvaginn í gærkvöldi. Sjálfsmorðssprengjur voru sprengdar við leikvanginn. AFP
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert