21 skólastúlka laus úr haldi

AFP

Tuttugu og ein af skólastúlkunum sem var rænt í Chibok af vígasamtökunum Boko Haram í apríl 2014 er laus úr haldi, samkvæmt upplýsingum frá nígerískum yfirvöldum. Ekki kemur fram hvernig stúlkurnar losnuðu frá vígamönnum.

Samkvæmt BBC er talið að þær séu núna með leyniþjónustumönnum í borginni Maiduguri. Boko Haram rændi yfir 250 stúlkum í Chibok í apríl 2014 og vakti mannsránið gríðarlega reiði víða um heim.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert