Árásarmaðurinn sem varð lögreglumanni að bana við Champs Elysees-breiðgötuna í gærkvöldi, hét Karim Cheurfi að sögn franskra fjölmiðla. AFP-fréttastofan segir handskrifað bréf þar sem hryðjuverkasamtökin Ríki íslams eru lofuð hafa fundist nálægt þeim stað sem Cheurfi féll fyrir hendi lögreglu. Þá er eintak af kóraninum sagt hafa fundist í bíl hans nærri árásarstaðnum, sem og haglabyssa og hnífar.
Er Cheurfi sagður hafa komið akandi eftir Champs Elysees-breiðgötuna, þar sem hann fór út úr bílnum og skaut með sjálfvirkri byssu á bifreið lögreglu. Eftir það lagði hann á flótta og skaut á fleiri lögregluþjóna áður en lögreglan felldi hann.
Ríki íslams hefur lýst yfir ábyrgð á árásinni og segir einn liðsmanna sinna, „Belgan Abu Yussef“ hafa staðið fyrir árásinni.
Frönsk yfirvöld hafa ekki viljað gefa upp nafn árásarmannsins, en franskir fjölmiðlar segja það vera hinn 39 ára Karim Cheurfi.
Lögregla hefur þó staðfest að árásarmaðurinn hafi verið á lista hryðjuverkalögreglu yfir hugsanlega hryðjuverkamenn. Hann var síðast handtekinn í febrúar á þessu ári vegna gruns um að hann væri að undirbúa morð á lögreglumanni, en var látinn laus vegna skorts á sönnunum.
Þá segir AFP hann hafa hlotið fimm ára fangelsisdóm árið 2005 fyrir þrefalda morðtilraun árið 2001 og voru tveir af þeim sem hann skaut á þá einnig lögreglumenn.
Pierre-Henry Brandet, innanríkisráðherra Frakklands, greindi frá því í samtali við Europe 1 útvarpsstöðina í morgun að lögregla hefði lýst eftir öðrum manni, sem belgíska öryggislögreglan hefði borið kennsl á, í tengslum við rannsókn sína.
Greindi AFP-frá því skömmu síðar að sá maður hefði gefið sig fram við belgíska lögreglu.
Franska lögreglan er þá einnig sögð hafa handtekið þrjá fjölskyldumeðlimi árásarmannsins, að því er Reuters hefur eftir heimildamanni.