Hinrik Danaprins látinn

Hinrik prins, eiginmaður Margrétar Þórhildar Danadrottningar, er látinn.
Hinrik prins, eiginmaður Margrétar Þórhildar Danadrottningar, er látinn. AFP

Hinrik Danaprins er látinn. Prinsinn, sem var 83 ára, lést í gærkvöldi í konungshöllinni í Fredensborg og voru Margrét Þórhildur Danadrottning og prinsarnir tveir, Friðrik og Jóakim, við hlið hans er hann lést. Danska ríkisútvarpið greinir frá því að flaggað verði í hálfa stöng við allar byggingar danskra ríkisstofnana til 20. febrúar.

Greint var frá því í gær að Hinrik hef­ði verið flutt­ur af Rík­is­sjúkra­hús­inu í Kaup­manna­höfn og til Fredens­borg-hall­ar, þar sem hinsta ósk hans væri að fá að verja síðustu stundum sínum í höllinni.

Hinrik greind­ist með góðkynja æxli í lunga eftir að hafa verið lagður inn á sjúkra­hús í lok síðasta mánaðar og lét danska hirðin vita af því á föstudag að ástand prinsins væri alvarlegt. Hann greind­ist einnig með heila­bil­un á síðasta ári.

Danadrottning frestaði í kjölfarið öllum viðburðum sem hún átti að vera viðstödd og Friðrik krónprins hætti við að vera viðstaddur Vetrarólympíuleikana í Suður-Kóreu.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert