Foreldrar afgansks drengs nefndu son sinn í höfuðið á auðkýfingnum Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, í þeirri von að hann muni feta í fótspor forsetans.
Hugmyndina fékk faðir Trumps, Sayed Assadullah Pooya, og vonast hann til þess að sonurinn njóti jafn mikillar velgengni og forsetinn á sinni framabraut.
Donald litli Trump hefur hins vegar komið af stað fári á samfélagsmiðlum eftir að afrit af skilríkjum hans voru birt á Facebook sem sýna nafn hans.
Sayed hafa meðal annars borist líflátshótanir fyrir að hafa gefið syni sínum „heiðið“ nafn. Þá hafa nágrannar hans vinsamlegast beðið hann um að flytja burt.