Um 80 bílar skemmdust eða eyðilögðust eftir að svartklædd ungmenni kveiktu í bílum á nokkrum stöðum í Gautaborg og Trollhättan í gærkvöldi, en á síðarnefnda staðnum köstuðu ungmennin einnig grjóti í lögreglu og lokuðu vegum.
Þá voru einnig unnin annars konar skemmdarverk á bifreiðum í borgunum tveimur, m.a. var grjóti kastað í þá, rúður brotnar og slegið í bílana með bareflum.
Lögreglunni bárust fyrstu tilkynningar um íkveikju laust eftir klukkan 21 að staðartíma í nágrenni við Frölunda-torg. Skömmu síðar bárust einnig tilkynningar um íkveikju í bílum í Hjällbo og Trollhättan. Þá hefur einnig verið kveikt í dekkjum.
„Það hafa komið tímabil þar sem margir brunar hafa orðið á sama kvöldi, en ég minnist þess ekki að kveikt hafi verið í á svo mörgum stöðum á sama tíma áður,“ hefur sænska ríkisútvarpið SVT eftir Ulla Brehm, talsmanni lögreglunnar í umdæminu.
Sjónarvottar segjast hafa séð grímuklædd ungmenni hlaupa frá brunasvæðunum. „Ég sá 3-4 svartklædda drengi. Einn þeirra kastaði bensínsprengju í bíl, síðan heyrðist hár hvellur hefur Gautaborgarblaðið GT eftir sjónarvotti.
Fjöldi mynda og myndskeiða voru þá birt á samfélagsmiðlum sem sýndu logandi bifreiðar á bílastæðum. Þá sjást fleiri svartklæddar verur einnig kveikja í bílum.
Brehm segir í samtali við Expressen að lögreglu gruni að gerendurnir hafi haft samráð sín á milli, til að mynda í gegnum samfélagsmiðla. „Við vitum af fyrri reynslu að svona eldar eru oftar kveiktir í vikunni áður en skóli hefst en á öðrum tíma. Þegar svo mikið gerist rétt eftir klukkan níu að kvöldi getum við hins vegar ekki útilokað að þarna hafi eitthvað verið sett í gang á samfélagsmiðlum,“ sagði Brehm.
Stuttu eftir miðnætti greindi sænska lögreglan frá því að búið væri að slökkva alla eldana, en hún vinnur nú að því að bera kennsl á skemmdarvargana.