Tólf daga málflutningi í sakamáli gegn Paul Manafort, fyrrverandi kosningastjóra Donald Trump Bandaríkjaforseta, er lokið og eru örlög hans nú í höndum kviðdómara.
Ákæran gegn Manafort er í átján liðum og er hann meðal annars sakaður um skattsvik og fjársvik. Hann gæti átt yfir höfði sér allt að þrjátíu ára fangelsisdóm verði hann fundinn sekur. Hann hefur neitað sök frá upphafi.
„Þetta mál er stútfullt af lygum. Hr. Manafort laug og laug aftur,“ fullyrti varaalríkissaksóknari, Greg Andres, við kviðdómara í gær.
Verjendur Manafort lýstu yfir efasemdum um trúverðugleika Rick Gates aðalvitnis ákæruvaldsins og sögðu hann vera lygara og þjóf. Gates, sem er fyrrverandi viðskiptafélagi, Manafort fékk friðhelgi gegn því að vitna gegn honum í málinu.
Gates lýsti því fyrir kviðdómurum hvernig hann aðstoðaði Manafort við að fela erlendar tekjur í því skyni að komast hjá því að greiða skatta af þeim. Gates viðurkenndi að hafa stolið hundruðum þúsundum dollara frá Manafort.
Richard Westling, einn verjenda Manafort, sagði ákæruvaldið hafa mistekist að sanna sekt skjólstæðings síns.
Engin brotanna sem Manafort er sakaður um í þessum réttarhöldum tengjast rannsókninni á mögulegu samsæri á milli Rússa og kosningaherferðar Bandaríkjaforseta fyrir forsetakosningarnar vestanhafs árið 2016 með beinum hætti, þó að ákærurnar á hendur Manafort séu sprottnar af eftirgrennslan rannsakenda sem vinna að því máli.
Dómsskjöl málsins gefa í skyn að Manafort hafi fengið tugi milljóna dollara vegna vinnu sinnar í Úkraínu fyrir ráðamenn sem voru hliðhollir Rússum, en Manafort hefur lengi starfað sem pólitískur ráðgjafi. Hann mun síðan, samkvæmt skjölum málsins, hafa skipulagt svikamyllu til þess að koma þessu fé fram hjá nefinu á bandarískum skattayfirvöldum.