Trump hótar að loka landamærum að Mexíkó

Donald Trump Bandaríkjaforseti hótar að láta herinn loka læandamærum Bandaríkjanna …
Donald Trump Bandaríkjaforseti hótar að láta herinn loka læandamærum Bandaríkjanna og Mexíkó. AFP

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur hótað því að láta bandaríska herinn loka landamærum Bandaríkjanna og Mexíkó ef þarlendum stjórnvöldum tekst ekki að draga úr fjölda flóttamanna sem fara yfir landamærin frá Mið-Ameríku til Bandaríkjanna.

Trump greindi frá þessu á Twitter í morgun þar sem hann segir einnig að barátta gegn fíkniefnainnflutningi sé mikilvægari en viðskiptasamningar. Hótanir og yfirlýsingar Trump koma í aðdraganda þingkosninga vestanhafs en aðeins eru tæpar þrjár vikur til kosninga þar sem repúblikanar reyna hvað þeir geta að verja meirihluta sinn í fulltrúadeildinni.

Þúsundir flóttamanna frá Hondúras hafa komið til Bandaríkjanna um landamæri Bandaríkjanna og Mexíkó á síðustu dögum. Trump segir í færslu sinni að hann hafi fylgst með Demókrataflokknum leiða innrás flóttafólks frá Hondúras, Gvatemala og El Salvador til Bandaríkjanna og að stjórnvöld í Mið-Ameríkuríkjunum sitji aðgerðalaus hjá. Trump segir að í þessum hópi séu glæpamenn.

Landamæri Bandaríkjanna og Mexíkó voru eitt af stóru kosningamálum Trump í forsetakosningunum 2016 þar sem hann hét því að byggja múr á landamærunum og láta Mexíkó greiða fyrir hann. Múrinn er enn á verkefnalista forsetans þó honum miði hægt.




mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert