Siðanefnd úrskurðar um hengingartakið

Hópur mótmælenda kom saman við höfuðstöðvar New York-lögreglunnar þegar réttarhöld …
Hópur mótmælenda kom saman við höfuðstöðvar New York-lögreglunnar þegar réttarhöld siðanefndarinnar hófust og kröfðust þess að Daniel Pantaleo yrði rekinn. AFP

Siðanefnd New York-lögreglunnar hóf í gær að rétta í máli lög­reglu­manns sem tók 43 ára banda­rísk­an karl­mann heng­ing­ar­taki á gang­stétt í New York í júlí árið 2014 með þeim afleiðingum að maðurinn, Eric Garner, lést.

Garner, sem var óvopnaður  hafði deilt við lög­reglu­menn sem sökuðu hann um að selja ólög­leg­ar síga­rett­ur.

 „Ég get ekki andað! Ég get ekki andað“ heyrist Garner segja þegar fimm lögreglumenn reyndu að koma á hann handjárnum. At­b­urður­inn var tek­inn upp á mynd­band og má sjá þegar lög­reglumaður­inn Daniel Pan­ta­leo tek­ur Garner svo­nefndu heng­ing­ar­taki eft­ir rifr­ildi þeirra og hvernig Garner berst fyr­ir lífi sínu.

Réttarmeinafræðingur úrskurðaði að Garner hefði verið myrtur og varð dauði hans kveikjan að Black Lives Matter-hreyfingunni, sem hefur fordæmt ofbeldi lögreglu gegn svörtum körlum.

Fjöldi rannsókna á málum þar sem bandarískir lögreglumenn hafa verið sakaðir um beita óhóflegri hörku gegn svörtum og fyrir að vera of snöggir að skjóta fylgdi í kjölfarið.

Brottrekstur úr lögreglu harðasta refsingin

Rannsókn á máli Garners hófst skömmu eftir lát hans og var tilkynnt í desember sama ár að lögreglumaðurinn yrði ekki ákærður. Þúsundir mótmæltu þessari ákvörðun og það er ekki fyrr en nú sem siðanefnd New York-lögreglunnar réttar í máli Pantaleo. Segir AFP lögregluyfirvöld hafa gefið þá skýringu á þessari löngu töf að beðið væri niðurstöðu rannsóknar mannréttindanefndar alríkisyfirvalda. Þeirri rannsókn er enn ekki lokið.

Eric Garner deilir við lögreglumennina áður en átökin hefjast.
Eric Garner deilir við lögreglumennina áður en átökin hefjast. Skjáskot

„Þetta eru orðin fimm ár. Fimm ár sem við höfum verið í framvarðalínunni að krefjast þess að réttlæti nái fram að ganga og þeir eru enn að reyna að sópa þessu undir teppið,“ sagði Gwen Carr, móðir Garners, þegar lögreglumenn Pantaleos reyndu að fá málinu vísað frá.

Þó að Pantaleo hafi undanfarin ár eingöngu fengið að sinna skrifstofustörfum er hann enn í New York-lögreglunni. Tugir mótmælenda söfnuðust saman við höfuðstöðvar lögreglunnar þegar réttarhöldin hófust og kröfðust þess að Pantaleo yrði rekinn, en það er harðasta möguleg refsing í máli hans.

„Við höfum öll séð myndbandið. Við höfum öll séð þegar hann er myrtur [...] og þeir eru enn að reyna að spila með okkur.“

Var hálstakið raunverulegt?

Réttarhöldum aganefndarinnar er ætlað að ákvarða hvort að Pantaleo hafi í raun tekið Garner hálstaki, en slíkt hefur lögreglu borgarinnar verið bannað að gera allt frá 1993.

„Strax í byrjun tók hann í hálsinn,“ segir Jonathan Fogel, sem fer með málið fyrir hönd óháðrar kærunefndar sem rannsakar kærur gegn lögreglu.

Í myndbandinu sést Pantaleo halda framhandlegg sínum upp við háls Garners í rúmar 15 sekúndur og á einum tímapunkti spennir hann greipar saman til að halda takinu.

„Þetta var með vilja gert,“ segir Fogel og hvetur til þess að Pantaleo verði gerður ábyrgur gjörða sinna.

Lögfræðingur Pantaleos fullyrðir hins vegar að hann hafi bara verið að sinna starfi sínu og að niðurstaðan hefði orðið sú sama þó hann hefði ekki snert háls Garners. Garner hafi þegar verið við slæma heilsu, hann hafi verið of feitur og hafi þjáðst af astma. Aukinheldur hafi það ekki verið fyrr en eftir Pantaleo sleppti takinu sem Garner hafi byrjað að kvarta yfir að hann næði ekki andanum.

Fjölskylda Garners hefur þegar fengið greiddar bætur frá borgaryfirvöldum í New York, sem féllust á að greiða 5,9 milljónir dollara í skaðabætur árið 2015.

Búist er við að úrskurður siðanefndarinnar liggi fyrir 24. maí.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert