Boris Johnson, sem þykir einna líklegastur til að standa uppi sem leiðtogi breska Íhaldsflokksins, og þar með forsætisráðherra Bretlands, að loknu formannskapphlaupi flokksins, tók ekki þátt í kappræðum kandítatanna um Brexit á Channel 4 í Bretlandi í kvöld.
Ræddu þeir, sem freista þess að verða næsti leiðtogi flokksins, um möguleika á nýjum samningaviðræðum við Evrópusambandið vegna útgöngu Breta úr sambandinu, og um kosti og galla þess að ganga úr því samningslaust.
Johnson afþakkaði boð í þáttinn og bar það fyrir sig að kappræður þar sem svo margir tækju þátt ættu það til að vera hryglukenndar.
Hægt er að lesa nánar um kappræður hinna frambjóðendanna á vef BBC.