Trump á vafalaust að láta af embætti

Fræðimennirnir Noah Feldman hjá Harvard, Pamela Karlan hjá Stanford, Michael …
Fræðimennirnir Noah Feldman hjá Harvard, Pamela Karlan hjá Stanford, Michael Gerhardt hjá háskólanum í Norður-Karólínu og Jonathan Turley hjá George Washington-háskólanum, sátu fyrir svörum dómsmálanefndar fulltrúadeildar Bandaríkjaþings í dag, sem hefur tekið við rannsókn á mögulegum embættisbrotum Donalds Trump Bandaríkjaforseta. AFP

Donald Trump Bandaríkjaforseti á að láta af embætti vegna embættisgjörða sinna. Á því leikur enginn vafi. Þetta er mat þriggja lagaprófessora á sviði stjórnskipunarréttar sem komu fyrir dómsmálanefnd fulltrúadeildar Bandaríkjaþings. 

Fjórir fræðimenn komu fyrir nefndina, þrír voru boðaðir af demókrötum og sá fjórði af repúblikönum sem sagði gjörðir Trump vissulega ámælisverðar en þær ættu ekki að kosta hann embættið.  

Fræðimennirnir voru kallaðir á fund dómsmálanefndarinnar í kjölfar skýrslu sem demó­krat­ar í leyniþjón­ustu­nefnd full­trúa­deild­ar banda­ríska þings­ins birtu í gær, þar sem full­yrt er að Trump hafi brotið af sér í embætti. Skýrsl­an er afrakst­ur tveggja mánaða rann­sókn­ar nefnd­ar­inn­ar á gjörðum for­set­ans og fylg­is­manna hans í sam­skipt­um við stjórn­völd í Úkraínu og þykir demó­kröt­un­um al­gjör­lega ljóst að for­set­inn hafi mis­notað embætti sitt til þess að hagn­ast sjálf­ur póli­tískt á því.

„Ef það sem við erum að tala um er ekki embættisbrot þá telst ekkert vera embættisbrot,“ sagði lögspekingurinn Michael Gerhardt. 

Dómsmálanefndinni hef­ur verið falið það verk­efni að taka af­stöðu til þess hvort mæla eigi með eða gegn ákæru á hend­ur for­set­an­um til emb­ætt­ismissis. Ef það verður niðurstaðan kemur það í hlut öldungadeildarinnar, þar sem repúblikanar eru í meirihluta, að ákveða hvort Trump verði steypt af stóli. 

„Við getum ekki beðið eftir kosningum til að takast á við þessa krísu,“ sagði Jerrold Nadler, formaður nefndarinnar og benti á að Trump hefði reynt að nýta sér utanríkisstefnu Bandaríkjanna til að fá erlent ríki til að hafa áhrif á komandi forsetakosningar og hann gæti reynt slíkt hið sama áður en langt um líður.

Jerrold Nadler, formaður dómsmálanefndar fulltrúadeildar Bandaríkjaþings.
Jerrold Nadler, formaður dómsmálanefndar fulltrúadeildar Bandaríkjaþings. AFP
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert