„Neyðarlegt“ að Trump viðurkenni ekki ósigur

Joe Biden, kjörinn forseti Bandaríkjanna, segir það „neyðarlegt“ að Donald Trump hafi ekki enn viðurkennt ósigur í forsetakosningunum vestanhafs sem fram fóru fyrir viku.

Biden og Kamala Harris varaforsetaefni hans héldu blaðamannafund í Delaware í kvöld og þar var Biden meðal annars spurður hvaða skilaboð honum finnist Trump senda með því að viðurkenna ekki ósigur í kosningunum. 

„Mér finnst þetta bara neyðarlegt hreint út sagt,“ sagði Biden. „Hvernig get ég sagt þetta af háttvísi? – Ég held að þetta muni ekki hjálpa arfleið forsetans,“ bætti Biden við. 

Biden ræddi í dag við helstu þjóðarleiðtoga Evrópu, meðal annars Aneglu Merkel Þýskalandskanslara, Emmanuel Macron Frakklandsforseta og Boris Johnson forsætisráðherra Bretlands. 

Spurður á blaðamannafundinum í kvöld hvað hann vilji segja við Donald Trump fráfarandi forseta sagði Biden: „Herra forseti, ég hlakka til að eiga samtal við þig.“

 

 

Joe Biden yfirgefur blaðamannafundinn sem fram fór í Delaware í …
Joe Biden yfirgefur blaðamannafundinn sem fram fór í Delaware í dag. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert