Ákvörðun um fangelsisdóm Navalnís tekin í dag

Navalní er viðstaddur réttarhöldin í dag.
Navalní er viðstaddur réttarhöldin í dag. AFP

Réttarhöld yfir rússneska stjórnarandstæðingnum Alexei Navalní hófust í Moskvu í dag. Ákvörðun um það hvort hann skuli sæta fangelsisvist sem gæti orðið allt að þrjú og hálft ár verður tekin í dag.

Navalní er sakaður um að hafa brotið skilyrði fangelsisvistar vegna fjárdráttar sem hafði verið frestað árið 2014. Hann er viðstaddur réttarhöldin í dag. 

Mikill fjöldi fólks hefur mótmælt handtöku Navalnís. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert