Elísabet ræðir við Biden

Elísabet hittir Biden síðar í mánuðinum.
Elísabet hittir Biden síðar í mánuðinum. AFP

Elísabet Bretlandsdrottning ætlar að hitta Joe Biden Bandaríkjaforseta 13. júní eftir að hann hefur tekið þátt í G7-ráðstefnunni í Bretlandi.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Buckingham-höll.

Elísabet mun hitta Biden og eiginkonu hans Jill Biden í Windsor-kastala, vestur af London, þar sem hún hefur dvalið að mestu síðan kórónuveirufaraldurinn fór af stað.

Joe Biden.
Joe Biden. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert