Útgáfu Apple Daily hætt

Miðlinum verður lokað í síðasta lagi á laugardag.
Miðlinum verður lokað í síðasta lagi á laugardag. AFP

Útgáfu dagblaðsins Apple Daily í Hong Kong verður hætt í síðasta lagi á laugardag. Ákvörðunin kemur í kjölfar þess að kín­versk stjórn­völd frystu eig­ur fé­lags­ins Next Digital Lim­ited, sem gef­ur blaðið út, með heim­ild nýrra ör­ygg­is­laga sem sett voru á síðasta ári.

Öryggislögin banna allan áróður um aðskilnað Hong Kong frá Kína, sem og áróður gegn Kínastjórn. Blaðið hef­ur hins vegar stutt við lýðræðis­hreyf­ingu lands­ins.

Stjórnvöld hafa einnig fangelsað starfsmenn blaðsins en Jimmy Lai, eig­andi blaðsins, var einn hinna fyrstu sem ákærðir voru á grund­velli öryggislag­anna. Hann gæti átt yfir höfði sér lífstíðarfang­elsi verði hann dæmd­ur.

Jimmy Lai gæti átt yfir höfði sér lífstíðarfangelsi.
Jimmy Lai gæti átt yfir höfði sér lífstíðarfangelsi. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert