Einna best að búa á Íslandi ef siðmenning hrynur

Aðstæður í hverju landi fyrir sig voru metnar með tilliti …
Aðstæður í hverju landi fyrir sig voru metnar með tilliti til hæfni þeirra til að rækta mat fyrir þjóðina sína, vernda landamæri sín og sjálfbærni í orkuframleiðslu og þá annarrar framleiðsluhæfni. mbl.is/Árni Sæberg

Nýja-Sjáland, Ísland, Bretland, Tasmanía og Írland eru bestu staðirnir til að dvelja á til þess að lifa af ef siðmenning heimsins hrynur. Þetta kemur fram í rannsókn sem fjallað er um á breska miðlinum Guardian.

Hrun siðmenningar gæti, að sögn rannsakenda, stafað af efnahagshruni, áhrifum loftslagsbreytinga, eyðileggingu náttúrunnar eða jafnvel vegna heimsfaraldurs.

Aðstæður í hverju landi fyrir sig voru metnar með tilliti til hæfni þeirra til að rækta mat fyrir þjóð sína, vernda landamæri sín og sjálfbærni í orkuframleiðslu og þá annarrar framleiðsluhæfni. Eyjar í tempraða beltinu með lítinn fólksfjölda komu best út úr þessari greiningu.

Nýja-Sjáland best

Rannsakendur segjast hafa fundið þá þætti sem þjóðir þurfa að bæta til þess að vera betur í stakk búnar til þess að takast á við svona aðstæður.

Það kom rannsakendum á óvart að Bretland kæmi svona vel út, enda er þjóðin stór og framleiðir ekki nema 50% af þeim matvælum sem hún neytir en ljóst er að landið býr yfir frekari tækifærum. 

Nýja-Sjáland kom best út úr rannsókninni vegna jarðhita, mikillar dreifingar íbúa um eyjuna, vatnsafls og vegna þess hve öflugur landbúnaðurinn er þar í landi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert