Saka talíbana um að ræna fréttamönnum

Talíbanar hafa leyst upp mótmæli og tekið harkalega á gagnrýni …
Talíbanar hafa leyst upp mótmæli og tekið harkalega á gagnrýni frá því að þeir komust til valda í ágúst. AFP

Aðgerðarhópur hefur sakað yfirvöld talíbana í Afganistan um að handtaka tvo fréttamenn sem voru að störfum fyrir afganska fréttastofu. 

Frá valdaráninu í ágúst hafa talíbanar vegið að frelsi blaðamanna og brugðist harkalega við gagnrýni á stjórnvöld. Hafa þeir meðal annars leyst um mótmæli og barið niður blaðamenn sem tóku þátt í þeim.

Gripin fyrir utan skrifstofu fréttastofunnar

Samkvæmtu Afgönsku fjölmiðlasamtökunum voru sjónvarpsfréttamenn Waris Hasrat og Aslam Hijab tekin í gær af talíbönum og færð í „óþekktan stað“.

Talsmaður fréttastofunnar sagði að fréttamennirnir hefðu verið teknir af grímuklæddum byssumönnum fyrir utan skrifstofu fréttastofunnar þegar þeir voru á leið í hádegismat.

Amnesty International hafa krafið talíbana um að sleppa fréttamönnunum skilyrðislaust.

Talíbanar hafa þó neitað öllum sökum og segjast vera að rannsaka mannshvörfin.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert