Mun viðurkenna sjálfstæði svæðanna

Pútín á fundi öryggisráðsins í dag.
Pútín á fundi öryggisráðsins í dag. AFP

Vladimír Pútín Rússlandsforseti mun viðurkenna sjálfstæði tveggja svæða aðskilnaðarsinna, sem studdir eru leynt og ljóst af Rússlandi, í austurhluta Úkraínu.

Greint er frá þessu í yfirlýsingu frá Kremlinni. Tekið er fram að Pútín hafi þegar upplýst leiðtoga Frakklands og Þýskalands um þessa ákvörðun sína.

„Í náinni framtíð hyggst forsetinn skrifa undir þessa tilskipun,“ segir í yfirlýsingunni.

Þar segir einnig að Emmanuel Macron Frakklandsforseti og Olaf Scholz kanslari Þýskalands hafi lýst vonbrigðum sínum með ákvörðunina í símtölum við Pútín í dag.

Fyrr í dag óskuðu leiðtog­ar beggja svæðanna eft­ir sjálf­stæðisviður­kenn­ingu af hálfu Rúss­lands.

Pútín hélt öruggri fjarlægð á fundinum.
Pútín hélt öruggri fjarlægð á fundinum. AFP

Sagði ákvörðun tekna í dag

Pútín fundaði í dag með öryggisráði sínu, utan hefðbund­inn­ar dag­skrár, en í ráðinu koma sam­an hæst settu emb­ætt­is­menn lands­ins í varn­ar- og ör­ygg­is­mál­um.

Héldu marg­ir þeirra inn­blásn­ar ræður á fund­in­um þar sem þeir lýstu yfir stuðningi við að sjálf­stæði svæðanna yrði viður­kennt.

„Ég hef heyrt skoðanir ykk­ar. Ákvörðunin verður tek­in í dag,“ sagði Pútín.

Öryggi, en ekki átök

Á fund­in­um sagði hann einnig að ógn vofði yfir Moskvu, sem fel­ist í spenn­unni á milli Rúss­lands og Vest­ur­landa vegna Úkraínu.

„Notk­un á Úkraínu, sem tóls til að eiga í ágrein­ingi við land okk­ar, skap­ar al­var­lega og mjög stóra ógn gagn­vart okk­ur,“ sagði for­set­inn og bætti við að í for­gangi í sín­um huga væri ör­yggi, en ekki átök.

Enn frem­ur sagði hann eng­ar horf­ur á því að hægt væri að fram­fylgja friðarsátt­mál­an­um sem gerður var árið 2015. Sátt­mál­an­um var ætlað að binda enda á átök úkraínska hers­ins og aðskilnaðarsinn­anna í aust­ur­hluta lands­ins.

Uppfært:

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert