Heineken leggur upp laupana í Rússlandi

Heineken ætlar að hætta starfsemi í Rússlandi.
Heineken ætlar að hætta starfsemi í Rússlandi. Ljósmynd/Valdís Þórðardóttir

Hollenska brugghúsið Heineken hefur tilkynnt um lokun í Rússlandi og er þar með orðið nýjasta vestræna fyrirtækið til að tilkynna um slíkt í kjölfar innrásar Rússa í Úkraínu.

Bjórframleiðandinn hafði þegar dregið úr sölu og framleiðslu Heineken bjórs í Rússlandi sem og fallið frá nýjum fjárfestingum í landinu.

„Við erum í miklu áfalli og leið yfir að sjá stríðinu í Úkraínu fram haldið og spennu aukast,“ segir í yfirlýsingu frá Heineken. 

„Í kjölfar yfirferðar á starfsháttum okkar og starfsemi, er niðurstaða okkar að starfsemi í eigu Heineken í Rússlandi er ekki lengur sjálfbær né heldur raunhæf í núverandi umhverfi,“ segir einnig í yfirlýsingunni. „Þar af leiðandi höfum við ákveðið að yfirgefa Rússland.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert