Segja Rússa hafa varpað efnavopnum á Snákaeyju

Gervihnattamynd af Snákaeyju.
Gervihnattamynd af Snákaeyju. AFP

Úkraínski herinn sakar rússneska herinn að hafa notað efnavopn á Snákaeyju en Rússar tilkynntu í gær að þeir hefðu dregið herlið sitt tilbaka af eyjunni. 

Um er að ræða sprengjur með fosfóri en ef frumefnið kemst í snertingu við húð getur það valdið alvarlegum brunasárum. 

„Í dag um klukkan sex varpaði rússneski flugherinn tveimur fosfórsprengjum á Snákaeyju,“ sagði í yfirlýsingu úkraínska hersins. 

Marg­ir muna eft­ir Sná­ka­eyju frá því að úkraínsk­ir her­menn á eyj­unni sögðu áhöfn á rúss­nesku her­skipi að fara til fjand­ans í stað þess að gef­ast upp fyr­ir þeim. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert