Háttsettir embættismenn hætta

Volodymír Selenskí Úkraínuforseti.
Volodymír Selenskí Úkraínuforseti. AFP/Sergei Supinskí

Kyrylo Tymoshenko, næstráðandi á forsetaskrifstofu landsins, hefur sagt af sér embætti. Hann þakkaði Volodimír Selenskí, forseta Úkraínu, fyrir „tækifærið til að gera góðverk á hverjum einasta degi og á hverri einustu mínútu“.

Uppstokkun hefur verið boðuð innan ríkisstjórnar Úkraínu.

Tymoshenko hefur verið bendlaður við hneykslismál í tengslum við notkun hans á dýrum bílum. Hann hefur neitað því að hafa brotið af sér, að því er BBC greindi frá.

Fleiri háttsettir úkraínskir embættismenn tilkynntu um afsögn sína í morgun eftir að mútumál skók varnarmálaráðuneyti landsins, þar á meðal aðstoðarvarnarmálaráðherrann Vyacheslav Shapovalov.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert