Leikhúsgestur rökræddi við leikara í miðri sýningu á Draumalandinu

Leikarar í Draumalandinu.
Leikarar í Draumalandinu. mbl.is/ G. Rúnar

Leikhúsgestur hóf rökræður við leikara í miðri sýningu á Draumalandinu í Hafnarfjarðarleikhúsinu í gærkvöld. Manninum þótti fullmikill áróður gegn álverum og álversframkvæmdum í leikverkinu, en það er byggt á bók Andra Snæs Magnasonar, Draumalandinu.

Leikarar munu þó ekki hafa tekið þetta nærri sér, að því er kom fram í samtali við Guðmund Inga Þorvaldsson leikara í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins. Þótti leikurum heldur þetta vera skemmtileg og óvænt uppákoma.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert