Íslensk kona fannst látin

Íslensk kona á þrítugsaldri fannst látin á hóteli á Dóminíska lýðveldinu í gær. Samkvæmt utanríkisráðuneytinu starfaði konan á hótelinu og fannst hún látin í híbýlum sínum þar. Ekki fékkst staðfest með hvaða hætti andlát hennar bar að.

„Það fannst íslensk kona látin á heimili sínu á Dóminíska lýðveldinu. Hún starfaði á hóteli þarna og fannst látin á því," sagði Pétur Ásgeirsson skrifstofustjóri hjá utanríkisráðuneytinu í samtali við mbl.is.

Pétur vildi ekki tjá sig frekar um málið eða með hvaða hætti andlát konunnar bar að garði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert