Krefst hámarksrefsingar

Úr dómssal Héraðsdóms Reykajvíkur í morgun.
Úr dómssal Héraðsdóms Reykajvíkur í morgun. mbl.is/Una

Verjandi konunnar sem ákærð er fyrir að deyða nýfætt barn sitt krefst þess að hún verði sýknuð. Sækjandi fer hinsvegar fram á hámarksrefsingu samkvæmt refsirammanum vegna manndráps, 16 ár. Þá krefst barnsfaðirinn 3 milljóna króna bóta.

Málflutningur í máli Agné Krataviciuté fór fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Hún er ákærð fyrir manndráp, með því að hafa  fætt  fullburða lifandi sveinbarn á einu baðherbergi hótelsins, veitt drengnum tvo skurðáverka á andlit með bitvopni og banað honum síðan með því að þrengja að hálsi hans uns hann lést af völdum kyrkingar. Hún var metin sakhæf af geðlæknum. 

Sækjandi fer fram á 16 ára fangelsi, sem er hámarksrefsing fyrir manndráp. Hann telur ekki að skilyrði séu fyrir hendi til að beita refsimildandi úrræðum. Verjandi hennar krefst þess að hún veðri sýknuð, fyrst og fremst með þeim rökum að ásetningur hafi ekki verið til staðar og hún hafi verið í miklu áfalli á verknaðarstundu. Til vara fer hann fram á lágmarksrefsingu. 

Lögmaður kröfuhafa, Deividas Marcinkevicius, fer fram á að ákærða greiði honum 3 milljónir króna í miskabætur, m.a. með þeim rökum að um alvarlegan verknað sé að ræða sem hafi valdið barnsföðurnum miklum miska, enda séu kringumstæður óhugnanlegri en orð fái lýst. Missir hans sé mikill og allt bendi til þess að hann muni bera andlegt tjón af þessum atburðum um ókomna tíð. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert