Rannsóknarnefnd flugslysa (RNF) er nú að afla gagna vegna öryggislendingar farþegaþotu Icelandair á Keflavíkurflugvelli á föstudagskvöld.
Þorkell Ágústsson, forstöðumaður og rannsóknarstjóri RNF, taldi að niðurstöðu mætti vænta á næstu vikum samkvæmt eðlilegum gangi slíkra rannsókna.
Sem kunnugt er bilaði lega í einu hjóla flugvélarinnar sem olli því að hjólið læstist og datt af þegar vélin hóf sig til lofts. Alls voru 191 um borð. Lendingin tókst giftusamlega.