Steingrímur J. fer fram

Steingrímur J. Sigfússon,
Steingrímur J. Sigfússon, mbl.is/Ómar Óskarsson

Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG, tilkynnti í dag formanni kjörstjórnar Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í Norðausturkjördæmi að hann myndi taka þátt í forvali flokksins vegna komandi alþingiskosninga.

„Ég býð mig fram til að leiða lista flokksins í kjördæminu eins og ég hef gert frá því kjördæmið varð til með alþingiskosningunum 2003, en áður hafði ég leitt lista flokksins í Norðurlandskjördæmi eystra við alþingiskosningarnar 1999. Þar áður hafði ég skipað efsta sæti á framboðslistum Alþýðubandalagsins í sama kjördæmi í fernum kosningum, þ.e. 1983, 1987, 1991 og 1995.

 Hugur minn stendur til þess að viðhalda í fyrsta lagi þeirri sterku stöðu sem Vinstrihreyfingin – grænt framboð hefur byggt upp, bæði í Norðausturkjördæmi sem og á landsvísu. Í öðru lagi að leggja í dóm kjósenda ótvíræðan árangur ríkisstjórnarinnar við uppbyggingu landsins eftir efnahagshrun nýfrjálshyggjunnar og svara fyrir verk hennar í kosningabaráttunni. Samhliða og nátengt er að leggja grunn að áframhaldandi samstarfi félagslega sinnaðs fólks við landstjórnina á komandi kjörtímabili. En í þriðja lagi og ekki síst vil ég ásamt félögum mínum um allt land leggja fram krafta mína í þágu vinstristefnu, umhverfisverndar, kvenfrelsis, friðarbaráttu og félagslegrar alþjóðahyggju.

Með þá reynslu að vopni sem hartnær 30 ára seta á Alþingi og meira og minna samfelld forustustörf í íslenskum stjórnmálum í aldarfjórðung hafa fært mér vonast ég til að geta enn um sinn lagt lóð á vogarskálar baráttunnar fyrir samfélagi jafnaðar og sjálfbærrar þróunar þannig að heldur muni um,“ segir í tilkynningu frá Steingrími J. Sigfússyni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert