Ómar: „Ég bara sat áfram“

„Vegagerðin er að láta gera þetta á þeim forsendum að við séum ekki lögaðilar að málinu en það er ennþá fyrir dómstólum og ekki búið að útkljá það. Ég skil ekki í því hvers vegna er verið að beita þessu mikla valdi og stórri sveit lögreglumanna á meðan málið er ekki ennþá útkljáð fyrir dómstólum landsins.“

Þetta segir Ómar Ragnarsson, fréttamaður, í samtali við mbl.is en hann var einn af þeim sem handtekinn var í morgun af lögreglu við Gálgahraun fyrir að reyna að koma í veg fyrir að framkvæmdir gætu hafist við nýjan Álftanesveg. Þegar blaðamaður heyrði í Ómari var hann staddur í fangaklefa.

„Ég gerði mér það til saka að sitja þarna. Lögreglan stóð þarna en lét mig alveg óáreittan þegar ég gekk inn á vinnusvæðið,“ segir hann. Hins vegar hafi verið komið í veg fyrir að ýmsir aðrir kæmust inn á svæðið. „Ég settist niður og þá kom fyrst maður með gjallarhorn og sagði að ég ætti að fara. Og ég bara sat áfram. Þetta er lögleysa og ég segi bara eins og í sjálfstæðisbaráttu Íslendinga: Ég stend á réttinum en beygi mig fyrir valdinu.“

Ómar Ragnarsson, fréttamaður, fjarlægður af lögreglu í morgun.
Ómar Ragnarsson, fréttamaður, fjarlægður af lögreglu í morgun. mbl.is/Júlíus Sigurjónsson
Mótmælandi borinn á brott af lögreglu.
Mótmælandi borinn á brott af lögreglu. mbl.is/Júlíus Sigurjónsson
Frá vettvangi við Gálgahraun í morgun.
Frá vettvangi við Gálgahraun í morgun. mbl.is/Júlíus Sigurjónsson
Frá vettvangi við Gálgahraun í morgun.
Frá vettvangi við Gálgahraun í morgun. mbl.is/Júlíus Sigurjónsson
Lögreglumenn hafa afskipti af mótmælendum.
Lögreglumenn hafa afskipti af mótmælendum. mbl.is/Júlíus Sigurjónsson
Lögreglumenn og mótmælendur við Gálgahraun í morgun.
Lögreglumenn og mótmælendur við Gálgahraun í morgun. mbl.is/Júlíus Sigurjónsson
Mótmælandi borinn á brott.
Mótmælandi borinn á brott. mbl.is/Júlíus
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert