Niðurstaða lífsýnarannsókna borist

Ljósmynd/Kristinn Freyr Jörundsson

Rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á andláti barns sem talið er að hafi látist af völdum blæðinga í heila í mars sl. stendur enn yfir. Í síðustu viku barst lögreglu hins vegar niðurstaða lífsýnarannsóknar. Faðir barnsins hefur verið í farbanni mánuðum saman í þágu rannsóknarinnar.

Friðrik Smári Björgvinsson yfirlögregluþjónn segir í samtali við mbl.is að farbannið yfir manninum hafi hinn 8. október sl. verið framlengt til 5. nóvember.

Hann segir að rannsókn málsins standi enn yfir en að niðurstöður rannsókna á lífsýnum hafi borist lögreglu fyrir nokkrum dögum. Nú þurfi hins vegar að bera gögnin undir hlutaðeigandi og taka þurfi fleiri skýrslur í tengslum við rannsóknina. Þeirri vinnu er ekki lokið en Friðrik segir að það styttist í að formlegri rannsókn ljúki.

Hinn 20. mars sl. greindi lögreglan á höfuðborgarsvæðinu frá því að karlmaður á þrítugsaldri, faðir barnsins, hefði verið úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna rannsóknar á andláti fimm mánaða gamals stúlkubarns. Atvikið átti sér stað sunnudagskvöldið 17. mars sl. þegar stúlkan var ein heima með föður sínum. 

Bráðabirgðaniðurstaða réttarlæknisfræðilegrar rannsóknar benti til að barnið hefði látist af völdum blæðinga í heila eftir að hafa verið hrist harkalega, eða svokallað „shaken baby syndrome“. 

Maðurinn var upphaflega úrskurðaður í farbann til 23. apríl sl. en síðan þá hefur farbannið verið framlengt ítrekað í þágu rannsóknarinnar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert