Fær að áfrýja til Hæstaréttar

Skjáskot úr myndbandinu af handtökunni.
Skjáskot úr myndbandinu af handtökunni.

Lögreglumaðurinn, sem var í desember sakfelldur fyrir að hafa farið offari við handtöku á Laugavegi í sumar, hefur fengið leyfi Hæstaréttar til að áfrýja máli sínu til réttarins.

Lögreglumaðurinn var dæmdur til 300.000 króna sektargreiðslu, sem nær ekki áfrýjunarfjárhæð Hæstaréttar. 

Í október var konan sem hann handtók dæmd í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að hrækja á lögreglumanninn. Konan játaði skýlaust brot sitt fyrir dómi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert