Guðmundur Felix Grétarsson hefur beðið eftir ágræðslu handleggja í Lyon í Frakklandi síðan í júní í fyrra.
Heimild var til fyrir aðgerðum af þessu tagi en sú heimild rann úr gildi við lagabreytingar í vetur.
Í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag kemur fram, að unnið hefur verið að endursamningu reglna undanfarna tvo mánuði svo Guðmundur Felix komist í aðgerðina en hún mun ekki eiga sér stað fyrr en í fyrsta lagi í haust.