580 milljónir vegna kvikmyndagerðar

Mikill vöxtur hefur verið í framleiðslu kvikmynda og sjónvarpsþátta hér …
Mikill vöxtur hefur verið í framleiðslu kvikmynda og sjónvarpsþátta hér á landi síðustu tvö árin. mbl.is/Styrmir Kári

Lagt er til að veitt verði 580 milljóna króna framlag til endurgreiðslna vegna kvikmyndagerðar á Íslandi í frumvarpi til fjáraukalaga. Mikil aukning í framleiðslu kvikmynda og sjónvarpsþátta hér á landi hafa leitt til þess að endurgreiðslur stefna verulega framúr fjárheimildum á þessu fjárlagaári.

Í frumvarpinu kemur fram, að all nokkur erlend verkefni hafi komið til landsins og sum þeirra séu afar stór. 

Tillagan gerir ráð fyrir að rílega 370 milljónir af endurgreiðslunum, sem hefðu að öllu óbreyttu átt að greiðast fyrir lok árs 2014, verði frestað til ársins 2015. Að teknu tilliti til þeirrar frestunar er áætlað að endurgreiðslunar verði nærri 1.670 milljónir á árinu 2014. Þar sem afgangsheimildir á þessum lið frá árinu 2013 nema 255 milljónum kr. og 837 milljóna fjárheimild er veitt í fjárlögum 2014 er þörf fyrir viðbótarfjárheimild sem nemur 580 milljónum króna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert