Ákæru í verðsamráðsmáli vísað frá

Byko og Húsasmiðjan.
Byko og Húsasmiðjan. mbl.is

Héraðsdómur Reykjaness hefur vísað frá dómi ákæru séstaks saksóknara á hendur einum sakborninga í verðsamráðsmálinu svokallaða. Alls voru 13 ákærðir í málinu en aðeins einn þeirra, sem var starfsmaður Byko, krafðist þess að málinu yrði vísað frá dómari.

Sér­stak­ur sak­sókn­ari höfðaði málið á hend­ur starfs­manna Húsa­smiðjunn­ar, Byko og Úlfs­ins bygg­inga­vara í maí sl. vegna gruns um verðsam­ráð. Sak­born­ing­arn­ir neituðu all­ir sök í mál­inu þann 22. maí sl.

Frávísunarkrafan var lögð fram í nóvember og fór málflutningur um hana fram 4. desember sl.

Kom á óvart

Saksóknari sagði í samtali við mbl.is, að nú yrði farið yfir forsendur úrskurðarins sem er kæranlegur til Hæstaréttar. Saksóknari segir niðurstöðuna hafa komið á óvart enda ekki gefnar út ákærur á hendur mönnum af tilefnislausu. Kærufrestur er þrír sólarhringar 

Málið, sem var í rann­sókn í rúm þrjú ár, er gríðarlega um­fangs­mikið og skjala­fjöld­inn tæp­lega fimm þúsund blaðsíður. Rann­sókn­in hófst í mars 2011 þegar Sam­keppn­is­eft­ir­litið og efna­hags­brota­deild rík­is­lög­reglu­stjóra fram­kvæmdu hús­leit­ir hjá Byko, Húsa­smiðjunni og Úlf­in­um - bygg­ing­ar­vör­um. 

Í fyrstu voru 19 manns hand­tekn­ir en þeim sleppt að lok­um yf­ir­heyrsl­um. Rúmri viku síðar voru 15 manns hand­tekn­ir og færðir til frek­ari yf­ir­heyrslu. Loks voru þrett­án ákærðir. Aðrir sem hand­tekn­ir voru eru þó hugs­an­leg vitni í mál­inu að sögn sér­staks sak­sókn­ara. Sönn­un­ar­gögn í mál­inu eru meðal ann­ars tölvu­póst­ar og sím­töl á milli starfs­manna.

Fyr­ir­huguð aðalmeðferð í mál­inu mun hefjast þann 11. fe­brú­ar í Héraðsdómi Reykja­vík­ur. Vegna fjölda sak­born­inga er ekki hægt að reka málið í Héraðsdómi Reykja­ness, og mun aðalmeðferðin því fara fram í dómsal 101 í Héraðsdómi Reykja­vík­ur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert