Hafnarfjörður veitir frí

mbl.is/Ómar

Bæjarráð Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum í dag að starfsmönnum Hafnarfjarðarbæjar verði gefið frí frá hádegi 19. júní 2015 í tilefni 100 ára afmælis kosningaréttar íslenskra kvenna. Skipulögð hátíðahöld eru áformuð viða um land þennan dag og með því að gefa frí er starfsmönnum Hafnarfjarðarbæjar gefinn kostur á að taka þátt í þeim. 

Stofnanir bæjarins verða því lokaðar frá hádegi 19.júní en öll neyðarþjónusta verður til staðar.

Hafnarfjarðarbær vill með þessu hvetja starfsmenn bæjarins til að taka þátt í hátíðarhöldunum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert