Ríkið skoðar styttri vinnuviku

Margir eru hlynntir því að vinnuvikan verði stytt og vilja …
Margir eru hlynntir því að vinnuvikan verði stytt og vilja gera vinnumarkaðinn fjölskylduvænni. mbl.is/Styrmir Kári

Stjórnvöld hafa lýst yfir vilja til að kanna með tilraunaverkefni hvort unnt sé að stytta vinnutíma án launaskerðingar og ná fram gagnkvæmum ávinningi starfsfólks og stofnana. Markmiðið er að kanna hvort stytting vinnuviku úr 40 vinnustundum í 36 stundir leiði til ávinnings.

Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra, og Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, undirrituðu yfirlýsingu þess efnis í dag.

Velferðarráðuneytið segir í tilkynningu, að í tengslum við viðræður um gerð kjarasamninga ríkisins við aðildarfélög BSRB í október 2015 hafi verið ræddar mögulegar leiðir til að stuðla að styttingu vinnutíma án launaskerðingar. Í framhaldi af þessum viðræðum lýsi ríkisstjórn Íslands sig reiðubúna til að beita sér fyrir því að koma á tilraunaverkefni þar sem vinnutími verður styttur án launaskerðingar, eins og fram komi í viljayfirlýsingunni.

„Markmið tilraunaverkefnisins verður að kanna hvort stytting vinnuviku úr 40 vinnustundum á viku niður í 36 stundir leiði til gagnkvæms ávinnings starfsmanna og viðkomandi stofnana. Sérstaklega verður skoðað hvernig útfæra megi styttingu vinnutíma hjá ólíkum tegundum stofnana, þar á meðal á stofnunum þar sem unnin er vaktavinna,“ segir í tilkynningu.

Þá kemur fram, að starfshópur verði stofnaður og verður hann skipaður fulltrúum ráðuneyta og BSRB og mögulega fleiri aðilum sem kunni að koma að verkefninu. Starfshópnum verður falið að skilgreina nánar markmið og aðferðir við útfærslu verkefnisins og hvernig meta skuli áhrif styttri vinnutíma á heilsu og vellíðan starfsfólks, starfsanda á vinnustöðum og á þjónustu viðkomandi vinnustaða með tilliti til gæða og hagkvæmni.

Áætluð lok tilraunaverkefnis munu taka mið af gildistíma kjarasamninga sem undirritaðir voru í morgun og er gert ráð fyrir að starfshópur skili skýrslu um árangur þess a.m.k. sex mánuðum áður en samningarnir renna út.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert