Ferðamaðurinn sem var fluttur á sjúkrahús eftir köfunarslys í Silfru er kona á þrítugsaldri. Hún liggur þungt haldin á Landspítalanum við Hringbraut. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi.
Lögreglunni barst tilkynning um slysið klukkan 12.42 í dag.
Konan var flutt með þyrlu Landhelgisgæslunnar á Reykjavíkurflugvöll þar sem sjúkrabifreið beið og flutti hana á Landspítalann.
Rannsóknardeild lögreglunnar á Suðurlandi rannsakar atvikið og getur ekki veitt frekari upplýsingar að svo stöddu.
Frétt mbl.is: Alvarlegt köfunarslys í Silfru