Eldsvoði á Kleppsvegi

Allt tiltækt lið slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins hefur verið kallað út að Kleppsvegi 56 vegna elds á annarri hæð fjölbýlishúss. Tilkynnt var um eldsvoðann til Neyðarlínunnar fimm mínútur yfir sex í morgun. 

Samkvæmt upplýsingum frá varðstjóra er búið að rýma húsið og slökkva eldinn. Unnið er að reykræstingu en ekki er vitað til þess að nokkur íbúi hafi verið fluttur á sjúkrahús.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert