Miðarnir komu ekki frá UEFA

Athafnamaðurinn Björn Steinbekk seldi nokkur hundruð miða á leik Íslands …
Athafnamaðurinn Björn Steinbekk seldi nokkur hundruð miða á leik Íslands og Frakklands. mbl.is/Kristinn

Miðar sem athafnamaðurinn Björn Steinbekk seldi stuðningsmönnum íslenska landsliðsins fyrir leikinn gegn Frakklandi sem fram fór í París í gær komu ekki frá UEFA, Knattspyrnusambandi Evrópu. Þetta staðfestir fjölmiðlafulltrúi UEFA í samtali við mbl.is. 

Eins og fjallað hefur verið um sátu tugir Íslendinga eftir með sárt ennið í París í gær þegar þeir fengu ekki miðana sína afhenta þrátt fyrir að hafa borgað fyrir þá. Björn hafði selt nokkur hundruð miða á leikinn, sem fram fór á Stade de France, en hluti þeirra sem keypt höfðu miða af honum komst aldrei inn á leikvanginn.

Frétt mbl.is: „Svik, skipulagsleysi og barnaskapur“

„Við höfum ítrekað brýnt fyrir almenningi að einungis sé hægt að kaupa miða á vef okkar, UEFA.com. Miðar sem eru ekki keyptir þaðan eru falsaðir eða ógildir,“ sagði fjölmiðlafulltrúi UEFA.

RÚV sagði frá því að Björn hafi fengið tölvupóst sem undirritaður var af „Nicole“ sem sagðist vera framkvæmdastjóri miðasölu hjá UEFA. Í tölvupóstinum var hvorki eftirnafn né netfang hjá henni, og aðspurður segir fjölmiðlafulltrúi UEFA að engin Nicole starfi við miðasöluna.

Þá kemur fram í póstinum að milligöngumaður Björns sé Gaetano Marotta, framkvæmdastjóri Gama sport. Mbl.is hefur reynt að ná sambandi við Marotta án árangurs. 

Björn sagði í viðtali við RÚV í morg­un að hann hafi verið svik­inn af miðasölu­stjóra hjá Knatt­spyrnu­sam­bandi Evr­ópu. Hann hafnaði því að miðarn­ir sem hann seldi hafi verið falsaðir eða fengn­ir með ólög­leg­um leiðum. 

Ólaf­ur Árni Hall og kær­asta hans, Erla Dögg Aðal­steins­dótt­ir, voru á meðal þeirra sem lentu í miðasvik­unum, en Ólafur sagði í samtali við mbl.is fyrr í dag að um hafi verið að ræða „svik, skipulagsleysi og barnaskap“.

Parið keypti miða í gegn­um vefsíðuna net­midi.is af Kristjáni Atla Bald­urs­syni, en hann hafði keypt 100 miða og skipu­lagt ferð með leiguflugi frá Ak­ur­eyri til Frakk­lands. Miðana keypti hann af Birni Stein­bekk og borgaði fyr­ir þá 5,3 millj­ón­ir króna.

Frétt mbl.is: Franska lögreglan rannsakar miðasvikin

Frétt mbl.is: Voru svik­in um miða á leik­inn

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert