Lýsa eftir manni vegna vopnaðs ráns

Lögreglan á Suðurnesjum óskar upplýsinga um mann í tengslum vopnað rán sem var framið í Apóteki Suðurnesja við Hringbraut 99 í Keflavík. Ránið átti sér stað um kl. 18.30 nú í kvöld.

Maðurinn er sagður hafa verið klæddur í þverröndóttan bol og víðar gallabuxur. Þeir sem kunna að hafa séð til ferða hans við apótekið á fyrrgreindum tíma eru vinsamlegast beðnir um að setja sig í samband við lögregluna á Suðurnesjum í síma 444-2299.

Jón Halldór Sigurðsson, lögreglufulltrúi hjá lögreglunni á Suðurnesjum, varðist allra frétta þegar Mbl.is náði af honum tali nú í kvöld en staðfesti að maðurinn hefði verið vopnaður. Allt lögreglulið umdæmisins reyni nú að hafa uppi á manninum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert