Ekki útlit fyrir verulegt tjón

Búið er að slökkva eldinn í virkjuninni en ekki er …
Búið er að slökkva eldinn í virkjuninni en ekki er útlit fyrir að mikið tjón hafi orðið. mbl.is/Hanna

Betur fór en á horfðist eftir að eldur kom upp í loftræstibúnaði Hellisheiðarvirkjunar laust fyrir hádegi í dag. Slökkvistarfi er lokið en Brunavarnir Árnessýslu verða með vakt í nótt. Ekki er útlit fyrir að verulegt tjón hafi orðið á framleiðslubúnaði virkjunarinnar og að sá búnaður sem sló út eða slökkt var á í dag skili fullum afköstum um eða eftir helgi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Orku náttúrunnar. Jarðhitasýning, sem starfrækt er í virkjuninni, verður þó lokuð fram á mánudag, að minnsta kosti.

Eftir að eldurinn hafði verið slökktur tóku reykkafarar að ganga úr skugga um að ekki leyndust glæður milli þilja og stóð það starf fram á fimmta tímann. Þá lauk slökkvistarfi og Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hélt heim en Brunavarnir Árnessýslu standa vaktina í nótt.

Ekki er vitað um upptökin en eldurinn logaði í um tvo tíma í loftræstibúnaði og þaki miðhluta stöðvarhússins, þar á meðal þakpappa sem gaf frá sér talsverðan reyk. Þessa stundina er nokkur fjöldi fólks að undirbúa fyrstu viðgerðir á þaki stöðvarhússins.

Svartan reyk lagði frá virkjuninni um tíma og eldtungur teygðu …
Svartan reyk lagði frá virkjuninni um tíma og eldtungur teygðu sig til himins. mbl.is/Hanna

Fram kemur í tilkynningunni að almenningur hafi ekki orðið fyrir áhrifum af truflun á framleiðslunni og vonast er til að svo verði ekki. Einni af sex háþrýstivélum Hellisheiðarvirkjunar sló út skömmu eftir að elds varð vart en engin tengsl hafa þó enn sést þar á milli. Í öryggisskyni var hins vegar ákveðið að slökkva á lágþrýstivél virkjunarinnar og varmastöð áður en slökkvistarf hófst.

Útlit er fyrir að það takist að endurræsa lágþrýstivélina og varmastöðina um helgina. Í varmastöðinni er framleitt heitt vatn fyrir hitaveituna á höfuðborgarsvæðinu. Þar sem útlit er fyrir kólnandi veður er full þörf fyrir þá framleiðslu. Í dag var meðal annars farið yfir til hvaða aðgerða mætti grípa tefjist það að koma heitavatnsframleiðslunni af stað.

Engan sakaði í brunanum og reglulegar æfingar starfsfólks í virkjunum Orku náttúrunnar með Brunavörnum Árnessýslu og Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins skiluðu sér í markvissum viðbrögðum við eldinum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert